Djúsahreinsunarkúr.

Já vinkona mín keypti þennan snilldarkúr sem samanstendur af allskonar djúsum, hörfæjum og tei. ég ákvað að prófa þennan kúr sem stendur yfir í 7 daga. 1 dagur er svona lítill matur meira af djús og hörfræjum, 2-5 dagur er djús, hörfræ og te. 7 dagur smá matur og djús, hörfræ og te.

Ég er á 1 degi og er að deyja, vá hvað ég er ekki með vott af styrk þegar það kemur að sleppa mat og hreinsa sig með djúsum, hörfræjum og tei. Ég er nú merir auminginn þetta er ekki megrun bara svona stutt hreinsun á líkamanum. Dagur 1 og er að drepast, veiiiiiiiiii... Þetta verður fyndið hvernig næstu dagar verða og svo mun ég tryllast og borða tonn af óhollum mat hehe. En ég ætla allavega að reyna þetta en það versta við þetta er að ég má ekki drekka kaffi, ég á eftir að vera ein sú versta í skapinu. Gaman að vera með mér, en vinkona mín er með mér í þessu þannig að við getum annaðhvort byggt hvor aðra niður eða við eigum eftir að sleppa okkur, en vinkona mín er svo dugleg og umburðalynd að ég held að hún eigi eftir að vera mikið í því að þagga niður í mér og segja mér hvað ég standi mig vel.

úfff jæja best að fara að sofa og hugsa hverstu yndislegt það verður að borða ekkert en drekka tonn af hreinsansdi vökva á morgun :)

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hó

Gaman að "sjá" þig aftur á blogginu.  Rakst einmitt á þig í mbl í gær =)

Vona að hreinsunin gangi vel, og gott að þetta er ekki megrun, get ekki sagt að þú þurfir á því að halda.

Hilsen
FELIX

Felix (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 15:27

2 Smámynd: Hildur Sif Kristborgardóttir

Nei hæ felix. Megrun nei langt í frá ég er að ganga í gengum hreinsunareldinn og ég skal segja þér það að það er ekki auðvelt en verður þess virði á endanum

Hildur Sif Kristborgardóttir, 27.6.2007 kl. 22:55

3 identicon

En þú ert svo hrein!!!

Nei, en að öllu gamni slepptu þá vil ég fá að vita hvaða hreinsunarkúr þetta er. Vil svona tilbúin detox, hef gert hitt svo oft en eftir barnsburð þá er ég of tóm til að hugsa svona flókið. Show me the money honey!

Laufey (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband