Sölumaðurinn er farin í frí

Jæja núna er ég ekki lengur sölumaður og það er alveg yndislegt. Ég er förðunarfræðingur og leikhúsförðunarfræðingur að mennt. Loksins get ég farið að gera það á daginn ásamt því að reka Hárhönnun með bestu vinkonu minni, já ég á bara 50% í því fyrirtæki. Voða gaman, mjög flott og vinsæl stofa á skólavörðustígnum. Ég mun sjá með vinkonu minni um reksturinn markaðsmál, starfsmannamál og allt það sem fylgir að reka fyrirtæki. Það eru bara sætar og klárar stelpur að vinna þar ;). Það er gott að fara að gera annað eftir að hafa verið að selja auglýsingar í alltof mörg ár, fínt að taka góða pásu frá auglýsingarbransanum þó svo að hann geti líka verið mjög skemmtilegur.

Þannig að núna vitið þið hvert þið eigið að koma í lit og klippingu og svo erum við með margt annað í boði t.d höfuðnudd, hárspa og fl.

Annars..

 

hehe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

til hamingju með atvinnuskiptin...

Ólafur fannberg, 10.1.2007 kl. 18:03

2 identicon

til hamingju með það ég mun halda áfram að koma með sjálfa mig og svo frænda þinn hann Arnar þín systir Eva Björk

Eva Björk (IP-tala skráð) 11.1.2007 kl. 08:14

3 Smámynd: Sveinn Waage

Get með sanni sagt: TIL HJAMINGJU !  búinn að reyna "losna" lengi sjálfur og gott ef það er ekki að takast..  ;)

Þetta er vissulega fjörugur brannsi en líka mannskemmandi og magasársgefandi..  you know what I mean

Kv. Svenni Waage

Sveinn Waage, 12.1.2007 kl. 11:13

4 Smámynd: Egill Jóhannsson

Til hamingju en mín hárgreiðsla er ekki til þess fallin að skapa þér mikil viðskipti.  Gangi þér vel.

Egill Jóhannsson, 13.1.2007 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband